Þórarinn ræðir um útlendinga- og efnahagsmál. Í upphafi þáttar er rætt um stöðu efnahagsins og hvernig breyttur tónn stéttarfélaganna muni koma til með að breyta næstu kjarasamningslotu nú þegar ljóst er að forsendur kjarasamninga eru brostnar. Megináhersla þáttarins er þó á útlendingamál og þá þróun sem Þórarinn telur vera að eiga sér stað á Íslandi í ljósi atburða síðustu viku. Hann fjallar um umræðu tengda ofbeldisverkum og viðbrögð samfélagsins við þeim, og setur íslenskan veruleika í samhengi við þróun í Evrópu undanfarin ár, sérstaklega með hliðsjón af Svíþjóð og Bretlandi. Hann veltir upp spurningum um hvort Ísland sé á svipaðri braut og önnur Evrópuríki og gagnrýnir það sem hann kallar meðvirkni í umræðunni. - Afhverju ætla Þjóðverjar að reka 80% Sýrlendinga til síns heima? - Hvaða áhrif hafa skattahækkanir og efnahagsástand á fyrirtæki og samfélagið? - Afhverju er Ísland eins og Svíþjóð 2015? Til að fá þætti hlaðvarpsins án auglýsinga og undan öðrum má fara inn á: www.pardus.is/einpaeling eða Leggja málstaðnum lið með því að greiða inn á: Rkn. 0370-26-440408 Kt. 4404230270 Samstarfsaðilar: Poulsen Happy Hydrate Bæjarins Beztu Pylsur Alvörubón Fiskhúsið Heitirpottar.is…
Þáttur af Ein Pæling með Þórarinn Hjartarson.