Þórarinn talar við Friðrik Einarsson en hann hefur farið mikinn á samfélagsmiðlum undir nafninu Taxý hönter þar sem hann birtir myndbönd af breyttu ástandi á leigubílamarkaði. Hann telur ástandið vera óviðnunandi og er það vegna erlendra aðila sem hafa komið inn á markaðinn sem eru ekki tilbúnir að lúta sömu reglum og viðmiðum sem tíðkast hafa á leigubílamarkaði hérlendis. Friðrik segir þetta vera sérstaklega slæmt hjá ákveðnum hópum og tengir hann það við stórmoskuna í Skógarhlíð sem hann segir stjórnendur standa í útgerð á leigubílamarkaði og að þeir séu upp til hópa að eyðileggja stéttina innan frá. Þá er einnig rætt um þau kynferðisafbrotarmál sem komið hafa upp undanfarin misseri og þá hræðslu sem konur virðast hafa gagnvart því að tilkynna hverskyns afbrot. Komið hafa upp mál sem hafa að gera með ferðir frá Leifstöð sem Friðrik segir að tengist þessu beint. Þá hafi jafnvel komið upp mál þar sem leigubílstjórar hóta að koma heim til fólks og að "eiginkonur starfsmanna læsi hurðum og gluggum extra vel". Einnig er rætt um hræðslu lögreglumanna á Keflavíkurflugvelli en Friðrik segir lögregluna veigra sér við að skerast í leikinn vegna hræðslu um ásakanir um rasisma. - Er hræðsla…
Þáttur af Ein Pæling með Þórarinn Hjartarson.