Þórarinn ræðir við Björn Jón Bragason og Agnar Tómas Möller um tengsl þekkingar, efnahagslegs frelsis og pólitísks frelsis. Sérstök áhersla er lögð á menningu og menntakerfið sem undirstöður framfara í nútímasamfélagi. Þremenningarnir vara við að óveðurský séu farin að hrannast upp og að verði ekki gripið í taumana muni þróunin leiða til minni velsældar fyrir komandi kynslóðir. Hugleiðingarnar eru settar í sögulegt samhengi með hliðsjón af Vestur-Evrópu, Bandaríkjunum og Kína. Fjallað er um breytingar á arfleifð ólíkra pólitískra leiðtoga og þá óvissu sem ríkir þegar reynt er að spá um þróun mála í síbreytilegum heimi. - Hvaða áhrif hefur agaleysi innan skólakerfisins? - Hver eru tengsl hugmyndafræði og efnahags? - Mun Íslandi takast að útrýma delluhugmyndum innan skólakerfisins? - Hver er ábyrgð einstaklingsins á eigin vörnum? Þessum spurningum er svarað hér. Til að fá þessa þætti án auglýsinga og undan öðrum má fara inn á: www.pardus.is/einpaeling eða Leggja málstaðnum lið með því að greiða inn á: Rkn. 0370-26-440408 Kt. 4404230270 Samstarfsaðilar: Poulsen Happy Hydrate Bæjarins Beztu Pylsur Alvörubón Fiskhúsið
Þáttur af Ein Pæling með Þórarinn Hjartarson.