Margrét Valdimarsdóttir: Þróun innflytjendamála á Íslandi

Þórarinn ræðir við Margréti Valdimarsdóttur, afbrotafræðing og kennara við Háskóla Íslands. Í þættinum er rætt um afbrot innflytjenda og hælisleitenda sérstaklega og breytta sviðsmynd á Íslandi í þeim efnum. Sérstök áhersla er lögð á áhrif umræðunnar og hvernig óþol hefur aukist á Íslandi gagnvart menningartengdum breytingum. Fjallað er um spurningar sem vakna þegar hópar taka sig saman á borð við Skjöld Íslands en Margrét nefnir í viðtalinu að þetta sé keimlík þeirri þróun sem hefur átt sér á stað á Norðurlöndunum þar sem sífellt harkalegar er tekist á um umrædd mál. Margrét telur að tölulegar upplýsingar sem birtast þurfi að setja í samhengi við aðra tölfræði og að varhugavert sé þegar upplýsingum er beitt til þess að koma óorði á ákveðna hópa og mála upp dekkri mynd heldur en raunverulega er fyrir hendi. - Afhverju notaði Skjöldur Íslands járnkrossinn sem sitt merki? - Verður sænski veruleikinn eiga sér stað hér á landi? - Eru hægri hlaðvörp að ýta undir hræðsluáróður? Hér er þessum spurningum svarað. Til að fá þessa þætti án auglýsinga og undan öðrum má fara inn á: www.pardus.is/einpaeling eða Leggja málstaðnum lið með því að greiða inn á: Rkn. 0370-26-440408 Kt. 4404230270…

Þáttur af Ein Pæling með Þórarinn Hjartarson.