Þórarinn ræðir við Jónas Atla Gunnarsson, hagfræðing og teymisstjóra Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar um húsnæðispakka ríkisstjórnarinnar og framtíðarhorfur á fasteignamarkaði. Rætt er um hvaða áhrif húsnæðispakkinn kann að hafa á næstunni og hvernig það mun koma til með að birtast í efnahagskerfinu og á hinum pólitíska vettvangi. Fjallað er um leiguverð, fasteignaverð, óhagnaðardrifin úrræði, eftirlit og óháðar byggingarúttektir, hvort að fasteignir munu leita á kennitölur lögaðila, hlutdeildarlán, vaxtadóm hæstaréttar og stýrivexti. - Mun fasteigna- og leiguverð hækka á næstunni? - Hvaða pólitísku áhrif mun húsnæðispakkinn koma til með að hafa? - Er pólitískur vilji fyrir niðurgreiddu húsnæði óhagnaðardrifna leigufélaga? - Hvaða áhrif mun vaxtadómur hæstaréttar hafa á framtíðina? Þessum spurningum er svarað hér. Til að fá þætti hlaðvarpsins án auglýsinga og undan öðrum má fara inn á: www.pardus.is/einpaeling eða Leggja málstaðnum lið með því að greiða inn á: Rkn. 0370-26-440408 Kt. 4404230270 Samstarfsaðilar: Poulsen Happy Hydrate Bæjarins Beztu Pylsur Alvörubón Fiskhúsið Drifa.is Palssonfasteignasala.is Heitirpottar.is
Þáttur af Ein Pæling með Þórarinn Hjartarson.