Þórarinn ræðir við Diljá Mist Einarsdóttur um hið ýmsa. Í upphafi þáttar er fjallað um kulnun, áhrif þess fyrirbæris á samfélagið og hvaða undirliggjandi þættir kunna að liggja að baki því að fólk fer í kulnun. Nú er stutt í sveitarstjórnarkosningar og því er rætt um stöðu Reykjavíkurborgar, samgöngur og hvort að Guðlaugur Þór Þórðarson sé að fara í borgina til að leiða Sjálfstæðisflokkinn. Að því loknu er rætt um kvenréttindi, útlendingamál, bakslagið og velferðarkerfið. - Ætlar Gulli í borgina? - Hafa stjórnmálamenn gengið of langt í umræðum um útlendinga? - Er til læknisfræðileg skilgreining á kulnun? Þessum spurningum er svarað hér. Til að fá þætti hlaðvarpsins án auglýsinga og undan öðrum má fara inn á: www.pardus.is/einpaeling eða Leggja málstaðnum lið með því að greiða inn á: Rkn. 0370-26-440408 Kt. 4404230270 Samstarfsaðilar: Poulsen Happy Hydrate Bæjarins Beztu Pylsur Drifa.is Palssonfasteignasala.is Heitirpottar.is Fiskhúsið.is Alvörubón
Þáttur af Ein Pæling með Þórarinn Hjartarson.