Unnar Stefán Sigurðsson: Skólastjóri Háaleitisskóla við Ásbrú

Þórarinn ræðir við Unnar Stefán Sigurðsson, skólastjóra Háaleitisskóla í Reykjanesbæ. Unnar hefur getið sér gott orðspor fyrir sérstaklega góðan árangur við skólann sem staðsettur er á Ásbrú. Í þættinum ræðir hann áskoranir sem fylgir því að taka á móti fólki með ólíkan menningarbakgrunn og hvaða undirstöður þurfa að vera fyrir hendi til þess að taka vel á móti fólki sem hingað leitar. Unnar segir að móttökuskólinn Friðheimar hafi verið grunnur þeirrar velgengni sem skólinn hefur notið. Hann segir stofnun hans hafi komið ró á skólann og að heilt yfir hafi það verið betra fyrir kennara, foreldra og ekki síst nemendur. Unnar Stefán hyggst nú fara í sveitarstjórnmálin fyrir Sjálfstæðisflokkinn en hann vill koma skóla- og íþróttamálum betur á dagskrá. Hann segir að Reykjanesbær hafi áður verið íþróttabær en að það starf hafi á undanförnum árum dalað. Einnig er rætt um samskipti við foreldra, skólaforðun, hindranir stjórnvalda, virðingu fyrir skoðunum, skoðanamunur kynslóðanna og margt fleira. - Hvernig er best að taka á móti börnum með ólíkan menningarbakgrunn? - Afhverju draga stjórnvöld lappirnar í því að auka íþróttastarf? - Eru foreldrarnir vandamálið? Þessum spurningum er svarað…

Þáttur af Ein Pæling með Þórarinn Hjartarson.