Arndís Anna K. Gunnarsdóttir: Orðræða dómsmálaráðherra ástæða hræðslu við flóttafólk

Þórarinn ræðir við Arndísi Önnu Kristínar- Gunnarsdóttur um flóttafólk, landamærin og skipulagða afbrotahópa. Arndís telur að alið sé á ótta með því að blanda þessum atriðum saman og að dómsmálaráðherra hafi aukið tortryggni gagnvart erlendu fólki með sinni orðræðu. Hún segir að fleiri stjórnmálamenn á borð við Snorra Másson hafi skaðað stöðu flóttafólks og að í praktík sé hann að tala fyrir dauðarefsingum þegar hann segir að flytja eigi flóttafólk til síns heima. Arndís segir að til þess að takast á við óumflýjanlegan vanda sem öll landsbyggðin sé að glíma við þurfi að taka á þessum málaflokki með mannúð. Ellegar verði staðan verri og enn ólíklegra að fólk aðlagist. - Hefðu ISIS liðinn og Kourani átt að vera fjarlægðir úr landi? - Elur dómsmálaráðherra á hatri gegn útlendingum? - Hvaða áhrif mun fangelsisvistun brottvísaðra einstaklinga hafa? Þessum spurningum er svarað hér.

Þáttur af Ein Pæling með Þórarinn Hjartarson.