Þórarinn ræðir við Ómar Annisius er fyrrum sérstaveitarmaður en starfar nú sem aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá Lögreglustjóranum á Suðurnesjum. Þetta er í annað skiptið sem Ómar mætir en nú telja bæði Ómar og Þórarinn að staðan hafi breyst töluvert frá því að þeir ræddu saman síðast. Rætt er um breytt kerfi á landamærunum sem er til þess ætlað að tryggja öryggi betur gagnvart þeim borgurum sem koma utan Schengen. Rætt er um entry-exit kerfið og hvernig lífeinkennisupplýsingar munu tryggja landamæravörsluna betur. Þá er einnig rætt um skipulagða brotastarfsemi, afhverju erlendum afbrotamönnum er ekki vísað úr landi, leigubílamálin í Keflavík og í miðbænum, hælisleitendakerfið, hryðjuverkaógn á Íslandi, Úlfar Lúðvíksson, íslamista og hvort að fjölga eigi lögreglumönnum með hálstattoo. - Afhverju er Dýrlingurinn enn að keyra leigubíl? - Er hryðjuverkaógn á Íslandi? - Afhverju er þeim sem stunda skipulagða afbrotastarfsemi á Íslandi ekki vísað úr landi? Þessum spurningum er svarað hér. Til að fá þætti hlaðvarpsins án auglýsinga og undan öðrum má fara inn á: www.pardus.is/einpaeling eða Leggja málstaðnum lið með því að greiða inn á: Rkn. 0370-26-440408 Kt. 4404230270 Samstarfsaðilar:…
Þáttur af Ein Pæling með Þórarinn Hjartarson.