Brynjar Níelsson: Gæti Brynjar hugsað sér að fara í Miðflokkinn?

Þórarinn ræðir við Brynjar Níelsson, stórvin þáttarins. Líkt og svo oft áður er farið um víðan völl. Rætt er um stöðu Sjálfstæðisflokksins í samhengi við stöðu Miðflokksins. Brynjar telur Miðflokkinn tala tæpitungulaust um raunveruleg vandamál í íslensku samfélagi og að það sé ástæðan fyrir uppgangi Miðflokksins. Þórarinn spyr Brynjar um það hvort að hann gæti betur átt heima í Miðflokknum og hvort að hann gæti hugsað sér að ganga til liðs við hann. Í kjölfarið er rætt um fjölskylduna, menntun barna, aumingjavæðingu háskólanáms á Vesturlöndum, Soffíu Frænki, Reykjavíkurborg, búrkuna, írönsku byltinguna, vísindalegan sannleik vinstrimanna, fjölmenningu, útlendingamál, landamærin og hvort að átök muni eiga sér stað í Evrópu á næstu árum. Að lokum er rætt um það hvort að Brynjari hugnist frekar að ganga til liðs við Evrópu eða Bandaríkin. - Myndi Brynjar sjá fyrir sér að ganga til liðs við Miðflokkinn? - Afhverju eru ungir karlmenn að ræna sig náttúrunni? - Er fjölmenning della? Til að fá þætti hlaðvarpsins án auglýsinga og undan öðrum má fara inn á: www.pardus.is/einpaeling eða Leggja málstaðnum lið með því að greiða inn á: Rkn. 0370-26-440408 Kt. 4404230270 Samstarfsaðilar: Poulsen…

Þáttur af Ein Pæling með Þórarinn Hjartarson.