Helgi Hrafn Gunnarsson: Almenningur hefur ekki hundsvit á útlendingamálum

Þórarinn ræðir við Helga Hrafn Gunnarsson, gamla Píratann sem allir elska. Farið er um víðan völl en í stuttu máli rætt um þrjá hluti, uppgang fasisma, útlendingamál og vændi. Helgi er gagnrýninn á slaufunarmenningu og setur það í samhengi við frönsku byltinguna og hvaða félagslegu afleiðingar hlýst af múgæsingi. Spurt er hvaða áhrif það hefði haft ef samfélagsmiðlar hefðu verið til á tímum frönsku byltingarinnar. Í kjölfarið að því er rætt um Guðbrand Einarsson og hvort að vændi eigi að vera lögleitt. Að lokum er rætt um breytta umræðu í útlendingamál og stefnubreytingu Samfylkingarinnar. Helgi telur almenning ekki hafa hundsvit á útlendingamálum þó svo að vert sé að ræða menningarmál í þeim efnum. - Hefði Guðbrandur Einarsson átt að segja af sér? - Afhverju hefur almenningur ekki hundsvit á útlendingamálum? - Hvað hefði gerst ef samfélagsmiðlar hefðu verið til á tímum frönsku byltingarinnar?

Þáttur af Ein Pæling með Þórarinn Hjartarson.