Ari Edwald: Oddviti Miðflokksins í Reykjavík

Þórarinn ræðir við Ara Edwald, fyrrum forstjóra Mjólkursamsölunnar og 365 miðla. Ari hefur farið mikinn í atvinnulífinu en auk þess að sinna starfi forstjóra var hann áður framkvæmdarstjóri Samtaka Atvinnulífsins. En nú hyggst Ari snúa sér að stjórnmálum en hann verður oddviti Miðflokksins í Reykjavík í næstu borgarstjórnarkosningum. Í upphafi þáttar er rætt um borgarlínuna en hann telur hugmyndafræðina á bakvið hana vera komna út í skurð og að taka þurfi í handbremsuna á því verkefni. Að því loknu er rætt um hið svokallaða Vítalíumál þar sem Vítalía Lazareva en hún ásakaði Ara og aðra um kynferðisafbrot í heita potti árið 2020. Málið og hvort það muni koma til með að hafa áhrif á velgengni Ara í kosningum er rætt í þættinum. Auk þessa er rætt um leikskólamál, skipulagsmál, Sjálfstæðisflokkinn og Miðflokkinn, fæðingarorlof, forræðishyggju, fánaborgina og mannréttindaráð, snjómokstur og húsnæði fyrir fíkla. - Þarf að taka í handbremsuna á borgarlínunni? - Mun Vítalíumálið hafa áhrif á velgengni Miðflokksins? - Hvað vill Ari gera við Mannréttindaráð Reykjavíkurborgar Þessum spurningum er svarað hér.

Þáttur af Ein Pæling með Þórarinn Hjartarson.