Hilmar Veigar Pétursson: Hugverkaiðnaðurinn á Íslandi er takmarkalaus

Þórarinn ræðir við Hilmar Veigar Pétursson, forstjóra CCP. Hilmar hefur áhyggjur af nýsköpunarumhverfi á Íslandi en telur samt sem áður að með einföldum ákvörðunum sé hægt að margfalda afköst hans. Hann segir að með núverandi ríkisstjórn hafi áherslurnar beyst sem hafi haft áhrif á menningu innan iðnaðarins. Hann segir að með lítilli breytingu á fyrirkomulagi lífeyrissjóða væri hægt að skapa nýja lífæð fyrir nýsköpunarfyrirtæki sem að með réttum hvötum sé í raun takmarkalaus. Menningin innan geirans hafi dalað og að það hafi meiri áhrif en margan grunar og að "stemningin" innan geirans hafi mikil áhrif á það hvort að hann blómstri eður ei. Einnig er rætt um Eve-online en það er að sjálfsögðu langstærsta afurð CCP. Rætt er um leikinn í samhengi við hagkerfi heimsins og hvaða skörun er á milli hagkerfisins í leiknum og hagkerfisins á Íslandi. Að lokum er rætt um orkumál, bæði hérlendis en einnig í Evrópu. Hilmar segir að orka sé mikilvæg stoð í nýjum heimi gervigreindar og að hægt væri að nota innviði álveranna í gagnaver en það gæti einnig verið til hagsbóta í öðrum kimum heimsins eins og í Afríku. - Hvernig geta orkumál valdið samfélagslegu harakiri? - Afhverju er…

Þáttur af Ein Pæling með Þórarinn Hjartarson.