Þórarinn ræðir við Brynjar Níelsson og Jón Gunnarsson. Í fyrstu er rætt um borgarstjórnarmálin en Brynjar hyggst ætla sér í framboð og telur mikilvægt að Reykjavíkurborg breyti sinni stefnu undir forystu nýs meirihluta. Spurt er hver beri ábyrgð á eyðimerkurgöngu Sjálfstæðisflokksins og hvort að til sé sá veruleiki að flokkurinn verði hið nýja varadekk Samfylkingarinnar í borgarstjórn. Einnig er rætt um Evrópusambandið og versandi samkeppnisstaða álfunnar og afhverju þetta sé nú komið á dagskrá en tvímenningarnir telja ástæðuna vera að ríkisstjórninni hafi ekki tekist að takast á við verðbólguna og atvinnuleysið. Að lokum er rætt um útlendingamál og spurt hvort að ríkisstjórn Sjálfstæðisflokksins, Vinstri grænna og Framsóknarflokksins hafi verið varaðir við því að taka á móti ákveðnum einstaklingum frá Palestínu líkt og Helgi Magnús, fyrrum vararíkissaksóknari hefur fullyrt. - Vöruðu Ísraelar íslensk stjórnvöld við? - Verður Sjálfstæðisflokkurinn nýja varadekk Samfylkingarinnar í borginni? - Á hvern skrifast eyðumerkurganga Sjálfstæðisflokksins?
Þáttur af Ein Pæling með Þórarinn Hjartarson.